„Menn voru búnir að gera húsleitir og berja sér á brjóst að hafa gert það og það var engin tilviljun, þessi dagur sem dæmi. Þarna vorum við að klára yfirtökuna á Arcadia sem var eitt stærsta tískuveruverslun Bretlandseyja. Það hafði verið í fjölmiðlun. Menn óttuðust það, að ef við myndum ná því fyrirtæki þá yrðum við ósnertanlegir. Daginn áður en átti að gera yfirtökutilboðið í samstarfi við breskan viðskiptajöfur, þá er þessi innrás.“
Þetta sagði Jón Ásgeir Jóhannesson en hann var gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál sem sýndur var á Hringbraut. Jón Ásgeir hefur verið undir radarnum síðustu ár líkt og hann orðar það sjálfur í viðtalinu og veitir sjaldan stór viðtöl. Í þættinum fór Jón Ásgeir ítarlega í saumana á Baugsmálinu, átökin við Davíð og Sjálfstæðisflokkinn, fall Glitnis og hvaða áhrif allt þetta hafði á fjölskylduna.
Sigmundur Ernir spurði hvort Jón Ásgeir hefði aldrei bognað eftir að hafa glímt við ákæruvaldið. „Beygði þetta þig ekki?“
„Það vita þeir sem lenda í þessu, að þetta er alltaf í gangi í hausnum á þér. Eins og óveðurský yfir þér,“ svaraði Jón Ásgeir og bætti við. „Hvað eru þeir að hugsa núna? Hvernig ætla þeir að pota í mann? Það voru alltof margar tilviljanir sem þarna komu saman að það lægi ekki eitthvað á bakvið.“
Jón Ásgeir benti á að húsleitin í Baugi hafi verið á þeim tímapunkti þegar hann var að klára yfirtöku á Arcadia. Skattrannsókn hófst um svipað leiti og verið var að kaupa Oasis. Seinna var verið að ljúka kaupum á öðrum verslunarrisa en deginum áður voru gefnar út ákærur.
„Þetta eru of margar tilviljanir. Það bjó eitthvað að baki,“ sagði Jón Ásgeir. Þá spurði Sigmundur: „Hversu mikið af baktalinu, baknaginu fór inn fyrir skelina?“
„Maður var alltaf að hugsa um fjölskylduna frekar en sjálfan sig. Þetta fór í taugarnar á mér,“ svaraði Jón Ásgeir.
Sigmundur spurði hvort börnin hans hefðu tekið baktalið nærri sér.
„Já, og nánasta fjölskyldu,“ svaraði Jón Ásgeir.
„Var þér sama?“ spurði Sigmundur.
„Nei,“ svaraði Jón Ásgeir og bætti við: „Ég hafði þann sið að reyna að svara sem oftast fyrir mig.“
Viðtalið við Jón Ásgeir í heild sinni er að finna hér: