Johnson algjörlega óhæfur til að verða forsætisráðherra

„Sir Max Hastings, einn virtasti blaðamaður Bretlands, fyrrverandi ritstjóri The Daily Telegraph og The Evening Standard, skrifar óvenjulega harkalega grein um forsætisráðherraefnið Boris Johnson. Hastings er líka sagnfræðingur og hefur skrifað fjölda bóka, aðallega um heimsstyrjöldina síðari og fleiri styrjaldarátök á 20. öld.“

Á þessum orðum hefst pistill Egils Helgasonar á DV.is í dag. Þar ræðir hann um Boris Johnson, sem er talinn sigurstranglegastur í kosningum breska Íhaldsflokksins um nýjan formann. Sigur Johnson í formannskosningunum myndi þýða að hann yrði næsti forsætisráðherra Bretlands.

Egill greinir frá því að Hastings hafi eitt sinn verið ritstjóri Boris Johnson þegar Johnson var ungur blaðamaður. „Hann [Hastings] telur að Johnson sé algjörlega óhæfur til að verða forsætisráðherra. Hann hugsi um ekkert nema frama sinn, frægð og eigin þarfir. Johnson sé ófær um að koma fram af virðingu, hann sé hugleysingi sem segi fólki það sem það vill heyra, alveg burtséð frá því hvaða afleiðingar það kunni að hafa klukkutíma síðar.“

Hastings segir að Johnson sé veikur persónuleiki, hann telji sjálfan sig líkjast Winston Churchill, sem Hastings hefur skrifað bækur um, en að í rauninni sé hann nær grínþáttafígúrunni Alan Partridge.

Egill segir: „Churchill hafi vissulega verið mjög upptekinn af sjálfum sér, en um leið hafi hann haft mikla samlíðan með fólki. Í fari Johnsons beinist allt slíkt að honum sjálfum, segir Hastings.“

Hann bætir við: „Johnson ætti í raun að vera í skemmtanaiðnaðinum, segir Hastings. Það gæti hins vegar verið lán hans að eini leiðtogi Verkamannaflokksins sem hann gæti sigrað í kosningum sé Jeremy Corbyn. Corbyn sé heiðarlegri maður, en hann sé haldinn ýmsum ranghugmyndum.“

„Hastings, sem nota bene er enginn vinstri maður, segir í lok greinarinnar að Íhaldsflokkurinn sé í þá mund að troða smekklausum brandara upp á Breta – og þeim muni varla finnast hann fyndinn lengi,“ segir Egill að lokum.