Már segir að gert sé ráð fyrir að launahækkanir í kjarasamningum á næsta ári verði í það hæsta miðað við það sem samrýmist verðbólgumarkmiðum bankans, sem eru tvo og hálft prósent.
Stýrivextir eða meginvextir bankans verða áfram 4,25%.
„Spennan í hagkerfinu heldur áfram að minnka og í gegnum minni hagvöxt og minni spennu á vinnumarkaði. Raunvextir Seðlabankans hafa lækkað aðeins við það að verðbólgan hefur hækkað og verðbólguvæntingar til skamms tíma hafa farið upp. En við teljum það enn sem komið er í lagi vegna þess hvernig hagkerfið er að þróast og þannig er svona jafnvægi milli þessara tveggja þátta og rétt að breyta engu, “ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/jafnvaegi-i-hagkerfinu-segir-sedlabankastjori