Hringbraut á landsleiknum gegn tékklandi

 Í frétta- og umræðuþættinum 21 í kvöld sjáum við þegar Snædís hitti á Laugardalsvelli Frey Alexandersson fráfarandi landsliðsþjálfara og Sif Atladóttur landsliðskonu um landsleikinn þar sem kvennalandsliðið tók á móti  landsliði Tékklands. 

Leikurinn fór 1-1 og dugði ekki til og Ísland fer ekki áfram í umspil og tækifærið til þess að komast á HM 2019 runnið úr greipum þeirra. 

 Mikil stemning var á leiknum og má með sanni segja að stelpurnar okkar eigi sér marga og dygga aðdáendur.