Íslensk verslun verður aldrei söm

Kjartan Örn Sigurðsson frá Verslanagreiningu ræddi við Lindu Blöndal í þættinum 21 á Hringbraut í gærkvöldi um íslenska verslun.

 Nýir verslunardagar og útsöluhefðir

 Mikið ber á erlendum straumum í íslenskri verslun og má þar aðallega nefna „Black Friday“, „Cyber Monday“ og „Singles Day“.Nöfnum þessara daga hefur verið snarað yfir á íslenskum í einhverjum tilfellum eins og Stóri netmánudagurinn og Svartur föstudagur eða Svartur Fössari sem er á allra vitorði og íslensk verslun auglýsti af miklum krafti nú í lok mánaðar. Þessar verslanahefðir koma hins vegar úr mjög ólíkum áttum. Ljóst er að hefðbundin verslun verður aldrei sú sama. „Singles Day“, hefur verið útlagt sem Dagur einhleypra en reyndar eiga tilboðin við alla einstaklinga.

Jólaverslunin hefst með tilboðshátíðum

 „Singles day er frá Kína og þróaðist út úr netmenningunni þar“, segir Kjartan Örn Sigurðsson frá Verslanagreiningu og því þurfum við að aðlaga erlendar verslanahefðir að okkar menningu. Hér á landi hafi ekki verið til neinar samskonar hefðir.  „Svarti föstudagurinn heitir þessu nafni þar sem að verslun í Bandaríkjunum fer þá úr tapi í hagnað, úr rauða blekinu í það svarta í bókhaldinu. Svarti föstudagurinn er svo dagurinn sem jólaverslunin byrjar. Í fyrra voru stóru fyrirtækin á Íslandi komin inn í Svarta föstudaginn og þá hófst þessi stóra sprenging sem við sjáum núna í lok mánaðar“, segir Kjartan.

 „Stóri netmánudagurinn er síðan búinn til fyrir netverslanir til að taka þátt í þessum tilboðshátíðum í upphafi jólaverslunarinnar.  Að sögn Kjartans ganga íslenskir kaupmenn alls ekki jafn langt og bandarískir, „Í Bandaríkjunum er gjarnan 50 prósent afsláttur af hreinlega öllu í verslunum. Kaupmenn nota daginn til að kynna nýjar vörur og koma jólaversluninni í gang“.

Hvað verður í jólapakkanum í ár?

„Í fyrra stóðu þrjár vörur uppúr í jólapökkunum. Í fyrst lagi Sous Vide græjan, í öðru lagi Karcher skúringarvélin sem heldur vinsældum sínum enn og við höfum líka upplýsingar um að 5.500 ToSing míkrófónar hafi selst fyrir jólin í fyrra,“ segir Kjartan.

 „Þetta er búið að vera ansi skemmtilegt ár fyrir íslenska kaupmenn. Fatabransinn hefur farið upp úr öllu valdi. Við vorum að útskrifa tvo stúdentsárganga, sjö þúsund manns að útskrifast og svo keypt föt á fleiri í fjölskyldunni en bara þann sem útskrifast“, segir Kjartan og þetta hafi margur kaupmaðurinn ekki séð fyrir. Neytendur eru þó aðhaldssamari núna en hið alræmda neysluár 2007 og fólk almennt ekki að skuldsetja sig fyrir einkaneyslu, að sögn Kjartans.

„Við höfum verið að skoða hvaða trend eru í gangi. Okkur sýnast vörurnar sem muni standa uppúr fyrir þessi jól séu alls kona snjalltæki fyrir heimilið. Amazon eða Google vörur sem eru persónulegir aðstoðarmenn fólks inni á heimilum og fólk getur til dæmis talað við. „Þessi tæki eru á viðráðanlegu verði og verða eflaust í mörgum jólapökkum“.

Gjörbreytt staða í merkjavöruflokknum

 Kjartan grunar líka að vörur með merkjum sem við höfum ekki séð áður verði í mörgum jólapökkum. Tölvuleikir eru orðnir gífurlega vinsælir og stór vörumerki í alls konar varningi „Það eru meiri tekjur í tölvuleikjabransanum en kvikmyndabransanum og það er ekki ólíklegt að verði keppt í tölvuleikjum á næstu ólympíuleikum. Liðin sem ungu kynslóðirnar eru að halda með eru ekki lengur fótboltalið, heldur lið í tölvuleikjaheiminum. Ég held að við eigum eftir að sjá marga í Fortnite peysum eftir þessi jól“ og vísar Kjartan þar til þekkts tölvuleikjar með sama nafni.

Mest að gera á laugardögum

Jólaverslun á sína hápunkta á ákveðnum dögum og á ákveðnum tímum.

„Þetta er þriðja árið í röð með fjórum laugardögum í desember og toppar verslunin á milli klukkan milli tvö og fjögur á laugardögum. Því má búast við að núna verði desember óvenju stór verslunarmánuður hjá kaupmönnum.