Skýrslunni er ætlað að gefa gott yfirlit yfir stöðu sveitarfélaga á Íslandi. Skattstofnar sveitarfélaga hafa reynst stöðugir og skatttekjur traustar. Launahækkanir og hækkanir á gjöldum vegna lífeyris hafa áhrif á rekstrarniðurstöðu sveitarfélaga á undanförnum árum. Dregið hefur úr neikvæðum áhrifum framangreindra liða.
Tekjur sveitarfélaga jukust nokkuð myndalega og fyrir vikið hefur rekstrarstaða ekki verið betri frá árinu 2007. Hafa ber í huga að staða sveitarfélaga er misjöfn. Horfa þarf til búsetubreytinga. Íbúafjöldi og aldurssamsetning og atvinnuþátttaka eru lykilatriði þegar möguleikar til tekjuöflunar sveitarfélaga eru skoðaðir.
Íslensk sveitarfélög eru 74 talsins en frá árinu 1990 hefur þeim fækkað um meira en helming í kjölfar sameininga. Framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem hlutfall af heilkdartekjum sveitarfélaga hefur vaxið úr 7% í 10%.
rtá
Nánar www.islandsbanki.is