Búist er við að íbúar landsins verði 436 þúsund árið 2067 samkvæmt spá Hagstofunnar. Til samanburðar var mannfjöldinn 348 þúsund í byrjun árs. Í spánni er reiknað með að íbúar verði 513 þúsund í lok spátímabilsins en 365 þúsund samkvæmt spá um minnsta mögulega fjölda.
Hagstofa Íslands hefur framreiknað mannfjöldann fyrir tímabilið 2018-2067 á grundvelli tölfræði um búferlaflutninga, frjósemi og dánartíðni.
Gerð eru þrjú afbrigði af framreikningnum; miðspá, háspá og lágspá.
Gangi miðspáin eftir verða eftirfarandi breytingar á aldurssamsetningu mannfjöldans:
- Yfir 20% af heildarmannfjölda verða eldri en 65 ára árið 2039 og yfir 25% árið 2057.
- Frá árinu 2046 verða þeir sem eru eldri en 65 ára í fyrsta sinni fjölmennari en þeir sem eru yngri en tvítugir.
Þótt þjóðin sé að eldast og fólksfjölgun verði fremur hæg, þá eru Íslendingar nú, og verða enn um sinn, mun yngri en flestar Evrópuþjóðir. Árið 2060 verður meira en þriðjungur Evrópubúa eldri en 65 ára en einungis um fjórðungur Íslendinga. Gert er ráð fyrir að Íslendingar nái núverandi hlutfalli innan ESB (19%) árið 2031.
Sjá nánar hér á vef Hagstofunnar.