Íslandspóstur segist í tilkynningu vera að undirbúa söluferli á Samskiptum en salan hluti af endurskipulagningu félagsins. Samskipti er fyrirtæki á sviði prentlausna og þjónustar fyrirtæki jafnt sem einstaklinga. Alls starfa 16 manns hjá fyrirtækinu í dag.
Íslandspóstur segist ætla að fá óháða matsaðila til að verðmeta félagið og taka saman sölugögn. Segir Íslandspóstur enn fremur að allt kapp sé lagt á að ferlið taki sem skemmstan tíma og mun auglýsing um söluferlið birtast á næstu vikum.
„Íslandspóstur er í allsherjar endurskipulagningu og mikið hagræðingarferli er farið af stað innan félagsins, í því ferli er litið á alla hluta rekstursins og metið hvað þjónar hagsmunum til framtíðar. Samskipti var keypt árið 2006 þegar aðstæður voru aðrar og Íslandspóstur var leita eftir viðskiptatækifærum til að styrkja sig til framtíðar enda lá þá þegar fyrir að vægi hefðbundinna bréfa myndi minnka í starfseminni. Tilkoma og vöxtur netverslana hefur haft það í för með sér að megin starfsemi Íslandspósts er í pakkasendinum sem og auðvitað bréfadreifingu. Við lítum einfaldlega svo á núna að prentsmiðjurekstur sé ekki hluti af kjarnastarfsemi Íslandspósts og höfum því ákveðið að setja fyrirtækið á sölu. Okkar markmið með endurskipulagningunni er að reka fyrirtækið á sem hagkvæmastan hátt, minnka yfirbyggingu og bæta þjónustu. Þessi ákvörðun er liður í þeirri vegferð,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.
Árið 2006, þegar Íslandspóstur keypti Samskipti, var þá tap á rekstri félagsins og eigið fé neikvætt upp á 63 milljónir. Kaupverð var ekki gefið upp á sínum tíma en niðurfært kaupverð í ársreikningum á árunum 2009 til 2011 nam rúmlega 131 milljón króna. Tilgangur kaupanna var sagður til að mæta kröfum viðskiptavina um aukna þjónustu og auka verðmæti eignarhluta félagsins.
Tapreksturinn hélt áfram hjá fyrirtækinu eftir kaupin öll árin, að undanskildu árinu 2007. Ástæða þess að ekki var taprekstur það árið var vegna þess að það árið keypti Íslandspóstur fasteign af Samskiptum. Árið 2013 var búið að afskrifa að fullu viðskiptavild Íslandspósts í Samskiptum. Það sama ár setti Íslandspóstur aukið hlutafé, rúmlega 55 milljónir króna, inn í fyrirtækið.