Íslandspóstur segir upp 43 starfsmönnum – alls 80 sagt upp á árinu

Íslandspóstur tilkynnti í dag um hópuppsögn 43 starfsmanna. Alls mun stöðugildum hjá fyrirtækinu fækka um 80 á árinu 2019. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Þar segir að Vinnumálastofnun og hlutaðeigandi stéttarfélögum hafi verið gert viðvart. Uppsagnirnar eru sagðar liður í nauðsynlegum hagræðingaraðgerðum sem miði að því að tryggja sjálfbæran rekstur fyrirtækisins og nútímavæðingu starfseminnar. Uppsagnirnar eru fyrst og fremst meðal millistjórnenda, á skrifstofu og í póstmiðstöð.

Þá kemur fram að Íslandspóstur muni bjóða öllum sem missa vinnuna ráðgjöf sérfræðinga við atvinnuleit og sálfræðiaðstoð. Þeir starfsmenn sem komnir eru nálægt starfslokaaldri fá einnig sérstaka ráðgjöf. Jafnframt verður hugað sérstaklega að starfsfólki sem áfram starfar hjá fyrirtækinu til að byggja upp starfsanda í kjölfar uppsagna.

„Uppsagnirnar í dag eru sársaukafullar og taka á alla, en eru því miður óumflýjanlegar til að hægt sé að ná settum markmiðum í rekstri fyrirtækisins. Við þökkum starfsfólkinu fyrir þeirra störf og munum leggja okkur fram við að aðstoða það við næstu skref,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.

„Á undanförnum mánuðum höfum við unnið að því að tryggja sjálfbæran rekstur Íslandspósts og samhliða því endurskipulagt starfsemina til að gera fyrirtækið betur í stakk búið til að takast á við þær öru breytingar sem hafa orðið í rekstrarumhverfinu. Með þeim skipulagsbreytingum sem ráðist verður í samhliða uppsögnunum munum við tryggja að þjónusta Íslandspósts við viðskiptavini okkar verði óbreytt,“ bætir hann við.

Samhliða uppsögnunum verður ráðist í skipulagsbreytingar sem tryggja eiga að þjónusta Íslandspósts skerðist ekki. Þær munu fela í sér að deildir verða sameinaðar eða lagðar niður, auk þess sem áfram verður unnið að einföldun á skipuriti Íslandspósts sem er ætlað að auka skilvirkni í starfsemi fyrirtækisins.

Stöðugildi fyrir uppsagnirnar voru 666 og er því um að ræða 12 prósent fækkun. Gert er ráð fyrir að aðgerðirnar leiði til um 500 milljón króna hagræðingar í rekstri Íslandspósts á ársgrundvelli. Uppsagnarfrestur starfsfólksins sem sagt var upp í dag er þrír til sex mánuðir og því mun hagræðingin byrja að koma fram í byrjun næsta árs, að því er segir í tilkynningunni.