„Menn þurfa að hafa í huga að heimsmyndin er að breytast svo mikið og það eru að koma upp öfl, og núna undir forystu Bandaríkjanna, sem vilja eiginlega breyta viðskiptaumhverfi heimsins sem hefur verið að byggjast upp í fjölþjóðasamtökum, yfir í tvíhliða samninga. Það getur auðvitað gagnast stórum og voldugum ríkjum, en fyrir smærri ríki, þar skiptir öllu máli að vera í fjölþjóðasamstarfi þar sem ríkja almennar reglur og dómstólar skera úr um ágreining en ekki þau ríki sem eru valdamest.“
Þetta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, í umræðu um Evrópumál í Ritstjórunum í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar er hann gestur Sigmundar Ernis ásamt Jóni Sigurðssyni, fyrrverandi ritstjóra Tímans.
Þorsteinn segir valið standa á milli tvíhliða samninga og alþjóðasamninga.
„Þannig að hérna stöndum við frammi fyrir því að velja á milli tveggja leiða. Við verðum að taka þessa breyttu heimsmynd inn í umræðuna, við getum ekki lokað okkur frá því sem er að gerast umhverfis okkur og taka afstöðu út frá íslenskum hagsmunum. Það er alveg ótvírætt fyrir þjóðir eins og okkur, þar skiptir meginmáli að vera í hópi með fleiri þjóðum til þess að komast yfir það að gera alla þessa viðskiptasamninga og búa til opið og frjálst viðskiptaumhverfi.“
Jón tekur undir þetta. „Það skiptir líka máli að við leitum skjóls hjá þeim þjóðum sem aðhyllast sömu hugsjónir og virða sömu gildi og við. Þetta þarf líka að vera allt á hreinu.“
Þorsteinn og Jón fara yfir helstu fréttamál líðandi stundar í Ritstjórunum í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.