Aðeins tuttugu og tvö prósent allrar raforku í ríkjum sem eiga aðild að Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) er framleitt með endurnýjanlegri orku. Á Íslandi er þetta hlutfall hinsvegar níutíu og níu prósent. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Alþjóða orkumálastofnuninni (IEA). Tölur stofnunarinnar eru fyrir tímabilið 2014-2016. Þar kemur einnig fram að sextíu prósent alls rafmagns sem framleitt er í OECD ríkjnum er framleitt úr kolvetnum (olíu og jarðgasi) en ein átján prósent með kjarnorku og önnu fjórtan prósent með vatnsafli.
Á Íslandi eru um sjötíu og þrjú prósent heildar raforkuframleiðslu með vatnsafli og tuttugu og sex prósent með jarðvarma. Parísarsamingurinn um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum tók gildi hinn 4.nóvember 2016. Ísland er aðili að samningnum en hann markar tímamót í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Þar sem Ísland er í fararbroddi í umhverfisvænni raforkuframleiðslu er framlag landsins í baráttuni gegn loftlagsbreytingum frásagnarvert fordæmi. Nánar www.samorka.is og www.umhverfisraduneyti.is