Ísland er eftirbátur annarra norðurlanda hvað varðar réttarstöðu brotaþola

Tillögur um bætta réttarstöðu brotaþola kynferðisofbeldis voru til umfjöllunar á ráðherranefndarfundi um jafnréttismál í gær. Dómsmálaráðherra mun hefja endurskoðun á löggjöf og lagaframkvæmd þegar í stað. 

Stýrihópi um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi var falið að gera tillögur um lagabreytingar með það að markmiði að styrkja stöðu brotaþola sem er í samræmi við stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Hópurinn fól Hildi Fjólu Antonsdóttur, réttarfélagsfræðingi, að vinna skýrslu um stöðu brotaþola á Íslandi í samanburði við önnur Norðurlönd og gera tillögur um úrbætur. 

Skýrslan leiðir í ljós að Ísland er eftirbátur annarra Norðurlanda að því er varðar réttarstöðu brotaþola, að Danmörku undanskilinni. Í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi er réttur brotaþola til upplýsinga, aðgangs að gögnum og þátttöku í meðferð máls fyrir dómi mun ríkari. Í skýrslunni eru settar fram tillögur um endurskoðun á löggjöf og lagaframkvæmd í fimmtán liðum, sem lúta að auknum rétti til upplýsinga og þátttöku á rannsóknar-, ákæruvalds- og dómstigi, auknum rétti til upplýsinga að dómi uppkveðnum og auknu aðgengi að skaðabótum. Lagt er til að brotaþolar fái aðild að sakamálinu eða, til vara, hljóti flest þau réttindi sem aðilar máls hafa eins og tíðkast á flestum Norðurlöndunum.