Innbrotum fjölgaði í maí

Yfirlit yfir afbrot á höfuðborgarsvæðinu hefur verið birt á facebook síðu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir maí sl.  

Skráð voru 740 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í maí sem er smávægileg fjölgun miðað við apríl.

Tilkynntum innbrotum fjölgaði á milli mánaða. Tilkynnt var um 97 innbrot í maí en 72 í apríl. Nytjastuldum fjölgaði einnig á milli mánaða.

Í maí bárust þó færri tilkynningar um ofbeldis- og kynferðisbrot en höfðu borist að meðaltali mánuðina áundan.

Skráðum umferðarlagabrotum fjölgaði hins vegar umtalsvert.

Í maí voru skráð 3.856 umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu og hafa ekki verið skráð jafn mörg brot í einu mánuði frá því að samræmdar skráningar hófust hjá lögreglu árið 1999. Stærstur hluti þessar mála eru vegna of hraðs aksturs, eða tæplega þrjú þúsund brot.