Indigo „ridd­ar­inn á hvíta hest­in­um“

„Sá hlær best sem síðast hlær,“ seg­ir For­bes í um­fjöll­un sinni um ís­lensku flug­fé­lög­in WOW air og Icelanda­ir, og vill meina að WOW air hafi átt loka­orðið eft­ir að Indigo Partners ákvað að hlaupa und­ir bagga með lággjalda­flug­fé­lag­inu.

Mál­tækið „haltu vin­um þínum ná­lægt, og óvin­um þínum nær,“ eins og sagt er upp á enska tungu, seg­ir For­bes hafa legið að grund­velli ákvörðunar Icelanda­ir um að kaup­in á WOW air. Í um­fjöll­un For­bes seg­ir að hluta­bréf Icelanda­ir hafi lækkað hægt og ró­lega síðan hið ódýra, kvika og bet­ur markaðssetta flug­fé­lag WOW var stofnað árið 2012.

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/