Icelandair undirritar áskorun í jafnréttismálum - ætla að auka hlutfall kvennflugmanna og flugþjóna

Í dag tók Icelandair þátt í undirritun áskorunar í jafnréttismálum á vegum IATA, alþjóðasamtaka flugrekenda, á alþjóðlegri ráðstefnu IATA í Berlín. Alls skrifuðu 25 flugfélög undir áskorunina og settu fram markmið sín í jafnréttismálum. Á sama tíma setur Icelandair þessi sömu markmið fram á Heimsþingi kvenleiðtoga sem stendur nú yfir í Hörpu en Icelandair er einn af bakhjörlum Heimsþingsins sem vinnur að því að efla jafnrétti í heiminum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Icelandair segist hefur náð góðum árangri í jafnréttismálum á undanförnum árum með því til dæmis að fjölga konum í stjórnendastöðum og er hlutfall kvenflugmanna hjá Icelandair með því hæsta sem gerist í heiminum. Árið 2008 var engin kona í stjórn félagsins og eingöngu karlar í framkvæmdastjórn. Í dag er kynjahlutfallið í stjórn félagsins 40% konur og 60% karlar og í framkvæmdastjórn 33% konur og 67% karlar. Þá er kynjahlutfall meðal annarra stjórnenda en þeirra sem sitja í framkvæmdastjórn jafnt. Þegar kemur að flugtengdum störfum var hlutfall karlflugþjóna um 5% fyrir um áratug og kvenflugmanna 6,5%. Í dag er hlutfall karlflugþjóna 9% en hlutfall kvenflugmanna 12%. Hins vegar hefur kynjahlutfall flugvirkja lítið breyst en þar er yfirgnæfandi meirihluti karlar, eða yfir 99%.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að fyrirtækið vilji stuðla að jöfnum tækifærum er að draga úr áhrifum staðalímynda.

„Icelandair hefur náð góðum árangri í jafnréttismálum á undanförnum árum. Við munum halda áfram að vinna að markmiðum okkar á þessu sviði enda viljum við sem flugfélag sem kennt er við Ísland geta staðið undir jafn mikilvægu hagsmunamáli fyrir okkur Íslendinga og jafnrétti er. Mikilvægur liður í því að stuðla að jöfnum tækifærum er að draga úr áhrifum staðalímynda og kynna fjölbreytta starfsmöguleika fyrir báðum kynjum. Við viljum tryggja að þau störf sem við bjóðum séu aðgengileg og aðlaðandi fyrir alla.“