Ferðamálastjóri telur að önnur flugfélög muni auka starfsemi sína í kjölfar þess að Wow air hefur tilkynnt að það ætli að draga verulega saman. Forstjóri Icelandair segir að félagið geti vaxið um allt að fjórðung.
WOW air tilkynnti í vikunni að félagið ætlaði að hverfa aftur til sama rekstrarmódels og var notað 2016 og fækka flugvélum úr tuttugu í ellefu. Það þýðir engar breiðþotur, færri flugvélar og færri áfangastaðir. Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir líklegt að önnur flugfélög nýti tækifærið og auki hjá sér.
„Það eru ýmis merki um það að þó að WOW muni draga saman eitthvað og fara niður í það sem þau voru 2016 þá muni ýmsir aðrir auka vi sig. Það liggur fyrir að Icelandair muni auka við sig. Það er ekki ástæða til að, í mínum huga, að gera ráð fyrir samdrætti,“ segir Skarphéðinn.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181219163