Íbúðafjárfesting vex hratt á íslandi

Byggingariðnaður og mannvirkjagerð er sú grein hagkerfisins sem vex hraðast um þessar mundir. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins sem Fréttablaðið vitnar til á forsíðu sinni í dag. Er þar bæði horft til fárfestingar í hagkerfinu og fjölgunar starfa.

Samkvæmt tölum sem Hagstofan birti 12. júní voru að meðaltali í hagkerfinu öllu 7.200 fleiri nýir launþegar á vinnumarkaði á fyrsta fjórðungi ársins en á sama ársfjórðungi í fyrra. Tæplega 1.600 þessara nýju starfa voru í byggingariðnaði og mannvirkjagerð. Merkir þetta að um 22 prósent allra nýrra starfa sem sköpuðust í hagkerfinu á tímabilinu eru í þessari grein.

Í heild fjölgaði launþegum í hagkerfinu um 4 prósent á fyrsta ársfjórðungi. Á sama tíma fjölgaði launþegum í byggingariðnaði og mannvirkjagerð um tæplega 14 prósent.

Þá sýna tölur Hagstofunnar líka að fjárfesting jókst í hagkerfinu um 11,6 prósent á fyrsta fjórðungi þessa árs frá sama ársfjórðungi í fyrra. Vöxtinn má að mestu rekja til íbúðafjárfestinga sem jukust um 38 prósent sem er mikill vöxtur. Á sama tíma jókst fjárfesting atvinnuvega um 7,1 prósent og fjárfesting hins opinbera um einungis 2,2 prósent.

Samtök iðnaðarins segja það ljóst að íbúðafjárfesting sé loks að taka kröftuglega við sér eftir mikla ládeyðu, sem sé afar jákvætt.

„Í fjölda íbúða er fjölgunin mest í Reykjavík en í könnun sem við gerðum fyrir skömmu kemur fram að prósentulega er vöxturinn mestur í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Hann er svolítið að færast út í jaðarinn og það kann að vera vegna þess að framboð á íbúðum hefur verið takmarkað hér og hefur verið að aukast þar og verðþróunin hefur verið með þeim hætti að munurinn á verði í 101 og á jaðarsvæðum hefur verið mikill,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

Ingólfur segist telja að vel flestar þessara íbúða séu ætlaðar fyrir almennan markað. „Langmest er þetta fjölbýli og afskaplega lítið byggt af einbýli,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið í dag.