Í viðræðum við mögu­lega kaup­end­ur

Skúli Mo­gensen, for­stjóri WOW air, seg­ir að fé­lagið eigi nú í viðræðum við aðra mögu­lega kaup­end­ur, en til­kynnt var um það í morg­un að Icelanda­ir væri hætt við fyr­ir­huguð kaup á fé­lag­inu. Þetta staðfesti Skúli við blaðamann mbl.is þegar hann var á leið á starfs­manna­fund sem boðað var til núna klukk­an 10:00.

Skúli vildi þó ekki greina frá hverj­ir mögu­leg­ir kaup­end­ur væru eða hvort þeir væru inn­lend­ir eða er­lend­ir fjár­fest­ar

Nánar á

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/11/29/i_vidraedum_vid_mogulega_kaupendur/