Andrés Magnússon er blaðamaður á Viðskiptablaðinu og fjallar þar alljafna um fjölmiðla og ýmislegt þeim tengt.
Hann hefur búið árum saman í Bretlandi, en kom til Íslands fyrir skömmu til að sinna launuðum störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kosningabaráttunni.
Á flestum fjölmiðlum væri þetta tvennt talið fara illa saman, en Viðskiptablaðið virðist ekki sjá neitt athugavert.
Í nýlegum skrifum Andrésar í Viðskiptablaðið er enda óglöggt að sjá hvor skrifar, blaðamaðurinn eða áróðursmaðurinn.
Hinn 13. október gerir hann lítið úr fréttum Stundarinnar um Bjarna Benediktsson og kallar þær þunnildi. Hann reynir einnig að gera hlut The Guardian í vinnslu málsins tortryggilegan.
Í dag slengir hann svo saman tveimur lögbannsmálum í eina umfjöllun.
Annars vegar banni við frekari umfjöllun Stundarinnar um viðskiptabrask Bjarna Benediktssonar. Hins vegar lögbanni á störf Loga Bergmanns Eiðssonar hjá Árvakri og Símanum.
Og Andrés spyr hvers vegna Blaðamannafélag Íslands hafi ekki fordæmt lögbannið á störf Loga rétt eins og hitt lögbannið.
Innan fjölmiðla klóra nú margir sér í kollinum yfir því, hvernig Andrési getur þótt nokkuð líkt með þessu tvennu, fordæmalausri árás á tjáningarfrelsið og því sem virðist vera augljóst brot dagskrárgerðarmanns og fréttaþular á ráðningarsamningi sínum.
Eina skýringin í sjónmáli er að það sé ekki blaðamaðurinn Andrés Magnússon sem skrifar pistil dagsins í Viðskiptablaðið.
Andrés á hálum ís
Fleiri fréttir
Nýjast
Náttfari
Stórmenni kveður
Dagfari
Sigurvegarar kjarasamninganna
Dagfari