Það er ekki komið að tómum kofanum í Mannamáli þessa vikuna þar sem einn dáðasti fréttaljósmyndari landsins síðustu hálfa öldina og gott betur sest hjá Sigmundi Erni og rifjar upp óvenjulega æsku sína og atvikin að baki mörgum merkilegustu blaðaljósmyndum síðustu áratuga.
Gunnar V. Andrésson, GVA, eins og hann er stundum kallaður ólst hvorki upp hjá móður sinni né föður, heldur ömmu sinni sem misst hafði mann sinn - og afa Gunnars með með áttunda barn sitt undir belti, en byrjað búskap með öðrum manni í þann mund sem afastrákurinn kom þar inn á skör í Stórholtinu sem iðaði af lifi á þessum tíma, þótt ekki væri nema stráksins í þarnæsta húsi, Ómars nokkurs Ragnarssonar sem sá til þess að aldrei var leiðinlegt í hverfinu, en enginn stökk þar hærra eða hjólaði hraðar en rauðhærði orkuboltinn á staðnum. Gunnar fór svo níu sumur í röð í sveit austur í Vopnafjörð í heimahaga ömmu sinnar og þar var merkilegasta skóla hans að finna í fólki sem kunni jafn mikið að hlusta og að segja frá, en lesblindan hamlaði hefðbundinni skólagöngu þegar hann tók að stálpast.
Svo var hann ráðinn á Tímann, vel fyrir tvítugt, af því að hann hafði unnið hjá Sambandinu, byrjaði í myndmótun en fékk svo að kaupa eina af myndavélunum hans Bjarnleifs Bjarnleifssonar á stassjóninni - og teningunum var kastað. Það er óborganlegt að hlusta á þennan lipra og ljúfa ljósmyndara segja allar sögurnar að baki mörgum frægustu myndunum sem hann tok af Óla Jó, Steingrími Hermannssyni, Vigdísi Finnbogadóttur og Ólafi Ragnari Grímssyni, en í viðtalinu er upplýst að forsetinn fyrrverandi bað Gunnar um að mynda samfundi hans og Dorritar austur á Leirubakka þar sem Ólafur var að kynna nýrri kærustu sinni land og þjóð, en með þessu vildi forsetinn opinbera sambandið fyrir þjóð sinni. Ferðin endaði á óvæntan máta, en Ólafur Ragnar datt af hestbaki eystra og til varð tárið, ein frægasta fréttaljósmynd seinni tíma þar sem Dorrit, verðandi eiginkona hins slasaða, stumraði yfir ástmanni sínum með tárin í augunum.
Mannamál eru frumsýnd öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30 og endursýnd í dag, en eru einnig aðgengileg á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.