Í gærkvöldi samþykkti stjórn stéttarfélagsins VR að gerast fjárhagslegur bakhjarl neytenda í baráttunni gegn smálánafyrirtækjum. Munu lántakar verða hvattir til þess að hætta að borga af ólöglegum smálánum. Kjarninn greinir frá.
Með því að gerast fjárhagslegur bakhjarl neytenda í þessari baráttu mun VR í samstarfi við Neytendasamtökin leggja út fyrir kostnaði vegna lögfræðivinnu og dómsmála sem þarf að höfða til að koma í veg fyrir að smálánafyrirtæki og þeir sem sinna innheimtu fyrir þau geti haldið áfram að innheimta okurvexti frá lántökum. Í þessu skyni verður til að mynda fyrirtækinu Almennri innheimtu ehf. og forsvarsmönnum þess stefnt, en fyrirtækið hefur séð um að rukka smálánaskuldir.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í samtali við Kjarnann að markmiðið sé að algjör stöðvun verði á greiðslum á öðru en höfuðstól til smálánafyrirtækja eða innheimtufyrirtækja sem starfi fyrir þau. Fyrstu skrefin í þeim efnum verði að hvetja fólk til að hætta að greiða af lánum sem séu ólögleg.
Stuðningur VR einskorðast ekki við félagsmenn VR og nær þannig til allra smálánataka sem þurfa á aðstoð að halda. „Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem við erum að fara í skítverkin eftir að löggjafinn bregst. Fólkið sem er að lenda í klónum á þessum fyrirtækjum fær að finna að það hefur einhvern bakhjarl. Það mun breyta mjög miklu gagnvart þeim,“ segir Ragnar Þór.