Hver verður í marki á móti frökkum?

Guðmundur Steingrímsson alþingismaður og Hildur Dungal lögfræðingur komu í Þjóðbraut til að tala um fótbolta, hvað annað. Þau, rétt einsog aðrir Íslendingar, eru upptekin af gengi landsliðsins.

Hildur sagðist hafa í hálfleik, leiks Íslands og Englands, skipt yfir á BBC. Þar voru þeirra helstu sérfræðingar að velta fyrir sér hvort Joe Hart yrði áfram markvörður Englands í leiknum á móti Frökkum. Engum þeirra kom til hugar annað en að England myndi vinna, þrátt fyrir að Ísland hafi leitt í hálfleik, 2-1.

Svo fór sem fór og það verður Hannes Þ. Halldórsson sem ver markið gegn Frökkum.