Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félagsmálaráðherra mætti í Umræðuna á Hringbraut og fór yfir stöðuna á þeim húsnæðisfrumvörpum sem hún hefur lagt fram og eru til meðferðar í þinginu. Hún segir fullvíst að frumvörpin verði afgreidd fyrir þinglok og hún hafi stuðning ríkisstjórnarinnar og fjármálaráðherra fyrir þeim. Ár er síðan að Eygló lagði fram húsnæðisfrumvörp sem fjármálaráðuneytið hafnaði við kostnaðarmatið. Fjögur frumvörp eru nú komin fram: Um almennar félagsíbúðir, um ný húsaleigulög, húsnæðisbætur og húsnæðissamvinnufélög. Til dæmis á að byggja íbúðir sem yrði á höndum almennra leigufélaga að byggja og reka. Stofnframlög komi frá bæði ríki og sveitarfélögum. Þá er í einu frumvarpinu lagt til að leigjendur fái húsnæðisbætur sem eru á við vaxtabætur þeirra sem eiga eigið húsnæði.
Óöryggi fólks á húsnæðismarkaði hefur aukist verulega undanfarin ár. Ný Gallupkönnun sýnir að tæp 26% telja sig búa við óvissu í húsnæðismálum miðað við 17 og hálft prósent 2003. Um 35% telja sig með öruggt húsnæði. Leigjendum hefur fjölgað um 50% frá árinu 2004 og ungt fólk á ekki fyrir útborgun til að kaupa sér húsnæði enda ekki verið lögð áhersla á að byggja litlar íbúðir sem eru ódýrar. Fólk á leigumarkaði á sjaldan möguleika á að leggja til hliðar og spara.
Tilkynnt var í vikunni að einkafélagið Gamma hefði keypt 450 íbúðir af Klett sem var leigufélag Íbúðarlánasjóðs og bauð upp á meira öryggi fyrir leigjendur en almennt er. Salan á sér stað á sama tíma og Eygló vinnur að því að auka öryggi og styrkja stöðu fólks á leigumarkaði. Klettur var vel settur fjárhagslega og skilaði tekjum til Íbúðalánasjóðs. Eygló sagði reglur ESA hafa krafist þess að Klettur yrði seldur þar sem um væri að ræða ríkisstyrkt félag og reglur Evrópusambandsins leyfðu það ekki.