Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands er harðorð í garð stjórnvalda vegna niðurskurðar og fálætis og tómlætis sem hún segir að sé gagnvart skólanum. Meðal annars sé húsnæði skólans í miðborginni í hripleku ástandi og engin áform eru um að bæta þar úr, í skólastofum er ekki að finna innstungur hvað þá sjálfsagðan tölvubúnað til kennslu.
Fríða segir að fá svör komi frá ráðuneytinu þótt stjórn skólans hafi komið með hugmyndir til að byggja skólann upp og boðið upp á samtal um framtíðina. Ekkert gerist, bendir hún á og framlög til skólans til rannsókna sé einungi 8 prósent af rekstrarfé. Aðrir skólar fái um tvöfalt meira og allt að sex sinnum meira til rannsókna.
Viðtal við Fríðu Björk verður á Hringbraut í kvöld á tíunda tímanum þar sem margt kemur fram varðandi stöðu skólans sem nú síðast í júní útskrifaði 140 nemendur. Um 450 nema við skólann á einhverri af þeim átján námsbrautum sem þar eru en skólinn ber m.a. ábyrgð á námi til listkennslu. Fríða segir skilningsleysi stjórnvalda gagnvart háskólastiginu sýnu verst þegar kemur að háskólanámi í listum.
Fríða bendir þó á að skólinn njóti alþjóðlegrar viðurkenningar um allan heim og standist allar þær kröfur sem gerðar séu til listaháskóla og námsins þar. \"Kannski erum við bara svona góð í að hagræða\", segir hún aðspurð um hvernig hægt sé að halda uppi gæðum þegar fjárskortur er svo mikill sem raun ber vitni.