Samkvæmt heimildum Eyjunnar verður allt að 400 starfsmönnum WOW air sagt upp í dag og á næstu dögum en um 1500 manns starfa hjá félaginu.
Hafa einhverjir þegar fengið uppsagnarbréf og tekur uppsögnin strax gildi.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, vildi ekki staðfesta þessar fréttir að svo stöddu, en gat heldur ekki vísað þeim á bug.
Indigo Partners er í kaupferli á WOW, en íslenska félagið hefur verið í fjárhagskröggum allt þetta ár.
Starfsfólk WOW hefur verið á nálum síðan félagið fór í hlutafjárútboð, sem ekki heppnaðist nægilega vel. Þá gengu kaup Icelandair Group ekki í gegn, en Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri WOW, sagði í lok nóvember að hann útilokaði ekki uppsagnir hjá félaginu.
Nánar á
http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/12/13/fjoldauppsagnir-hja-wow-i-dag-hundrudum-sagt-upp-samstundis/