Mynd dagsins á Gunnar Smári Egilsson formaður Sósíalistaflokksins. Gunnar Smári birti myndina á Facebook-síðu sinni. Um myndina segir Gunnar Smári:
„Hryllingsmynd dagsins. Níutíu kerti til að minnast 90 ára afmælis Sjálfstæðisflokksins. Appelsínugul kerti tákna að flokkurinn var í stjórnarandstöðu en blá þegar hann var í stjórn.“
Þá segir Gunnar Smári:
„Fjöldi blárra kerta sýnir að flokkurinn hefur fengið völd langt umfram fylgi eða stuðning almennings. Það r ekki við almenning að sakast að Sjálfstæðisflokkurinn hefur komist upp með skemmdarverk sín á íslensku samfélagi heldur forystu annarra flokka, sem keppast um að svíkja sína kjósendur til að geta deilt völdum með Sjálfstæðisflokknum.“