Hreindís ylva nýr formaður

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm var kjörin nýr formaður Ungra vinstri grænna á landsfundi hreyfingarinnar sem fram fór í Hafnarfirði um helgina.

Í Ungum vinstri grænum eru starfandi tvær stjórnir; framkvæmdastjórn sem sér um daglegan rekstur hreyfingarinnar og við hana bætist landstjórn sem er æðsta vald milli landsfunda.

 Hreindís er menntuð leik- og söngkona og hefur unnið með Leynileikhúsinu og kennt í faginu. Hún hefur einnig verið flugfreyja hjá Icelandair.