Hrafn gunnlaugsson leigir út umdeilt hús

Hjónin Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir, eigendur Blind Raven veitingahússins í Vatnsholti, hafa leigt hús af Hrafni Gunnlaugssyni. 

Um er að ræða umdeilt hús við Helluvatn, Elliðavatnsblett 3, sem deilur stóðu um á milli Hrafns og Orkuveitu Reykjavíkur.

Málið á sér aðdraganda 90 ár aftur í tímann, til dagsins 30. júní árið 1927, þegar landeigendur Elliðavatns seldu jörðina til Reykjavíkurborgar gegn vissum skilyrðum.

Dómur féll í máli Orkuveitunnar gegn Hrafni Gunnlaugssyni þann 14. júní 2016 þar sem segir í dómsorði: „Stefnanda, Hrafni Gunnlaugssyni, eru heimil afnot af lóðinni Elliða­vatns­bletti 3 í eigu stefnda, Orkuveitu Reykjavíkur, í 15 ár talið frá uppkvaðningu þessa dóms. Rétt­ur­inn er bundinn við stefnanda og fellur niður að honum látnum.“

Nánar á

http://bleikt.dv.is/bleikt/2018/07/08/hrafn-gunnlaugsson-leigir-ut-umdeilt-hus-vid-helluvatn/