Hjónin Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram hyggjast stefna Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra RÚV, dagskrárgerðarmönnunum Sigmari Guðmundssyni og Helga Seljan Jóhannssyni og viðmælendum þeirra, dragi Magnús Geir ekki til baka það sem þau kalla tilhæfulausar ásakanir, rangar fullyrðingar og meiðyrði í þeirra garð. Hjónin gefa Magnúsi Geir eina viku til að draga ummælin til baka fyrir hönd RÚV og fara fram á að Sigmar og Helgi hljóti alvarlega áminningu og að áheyrendur RÚV verði beðnir afsökunar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Jóns Baldvins og Bryndísar í Morgunblaðinu í morgun og Vísir greinir frá.
Jón Baldvin og Bryndís vísa til viðtals sem Sigmar og Helgi tóku við Aldísi Schram, dóttur þeirra, á Rás 2 þann 17. janúar, þar sem Aldís sakaði Jón Baldvin um að hafa misnotað aðstöðu sína sem sendiherra til að láta nauðungarvista hana í kjölfar ásakana hennar í hans garð um kynferðislega áreitni. Þau áskilja sér rétt til þess að stefna viðmælendum RÚV fyrir rétt af sömu ástæðum og að framan er greint. Ekki er hægt að skilja það öðruvísi en svo að átt sé við Aldísi.
Þau vísa einnig til greinar sem Sigmars og Helga skrifuðu og birtist í Morgunblaðinu þann 8. febrúar. Sú grein var svar við grein Jóns Baldvins í blaðinu daginn áður þar sem hann hafði gagnrýnt vinnubrögð þeirra í útvarpsviðtalinu. Jón Baldvin hafði týnt til það sem honum þótti vera rangfærslur en Sigmar og Helgi gerðu slíkt hið sama í sinni grein.