Hong Kong og Sjanghaí banka samstæðan sem á ensku heitir The Hong Kong and Sjanghai Banking Coporation og þekktust er undir skamstöfunin HSBC er sjötta stærsta bankasamstæða í heimi. Aðsetur HSBC er í London og hefur svo verið frá 1991. Nú áformar samstæðan að flytja sig um set til Parísar. Nánar á www.hsbc.com
Væringar í heimi stjórnmála og óvissa valda jafnvægisleysi í fjármálaheiminum. Um þetta skrifar Róbert Jóhannsson á fréttastofa RÚV í dag. RÚV segir að hagnaður HSBC hrynji. Áhrifavaldar eru líkast til bæði boðuð útganga Stóra-Bretlands úr Evrópusambandinu (Brexit) og getsakir um neikvæð áhrif boðaðra efnhagslegra verndaraðgerða ríkisstjórnar Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna. Haft er eftir Douglas First stjórnarformanni HSBC samstæðunar að komandi kosningar í Evrópu valdi óvissu sem og áhrif stefnu Bandaríkjastjórnar á alþjóðaviðskipti. Nánar á www.ruv.is
Franska fréttaveitan AFP telur að Brexit áformin og vinglkennd efnahagsstefna bandarísku ríkisstjórnarinnar skaði HSBC bankann. Bara þetta eina fyrirtæki áformi að fara með eitt þúsund störf frá London til Parísar sökum Brexit áformana. Þetta séu dýr störf. Fréttaveitan bætir við að þetta sé aðeins eitt dæmi um að þau eitthundrað þúsund svona störf sem eru á leið frá London. Nánar á www.afp.com
Ljóst er að HSBC samstæðan ætlar ekki að bíða og sjá hver mögulega árhrif útgöngu Stóra-Bretlands úr Evrópusambandinu verða. HSBC samstæðan tekur þessa ákvörðun eftir nokkra yfivegun. Aðrir bankar kunna að fylgja fordæmi HSBC. Líkast til eru leiðir út úr þeim ógöngum að halda starfsemi alþjóðabanka á einum stað og viðhalda stærðarhagkvæmni með staðsetningu í London nú í fullkomini óvissu.
Horfa til parísar vegna brexit
Fleiri fréttir
Nýjast
Náttfari
Stórmenni kveður
Dagfari
Sigurvegarar kjarasamninganna
Dagfari