Holan verður örvuð næstu daga á geldinganesi: getur valdið skjálftum

„Veitur munu á næstu dögum hefja örvun borholu í Geldinganesi í samræmi við áætlanir um að þróa nesið sem vinnslusvæði jarðhita fyrir hitaveituna í Reykjavík. Holan var boruð haustið 2001 en hefur ekki gefið nægt vatn til að rétt þætti að tengja hana hitaveitunni. Smáir jarðskjálftar geta fylgt örvuninni.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá veitum. Þar segir að þetta sé til að mæta  aukinni þörf fyrir lághitavatn.

„Frá árinu 1970 hafa allar holur sem boraðar hafa verið á lághitasvæðunum í Reykjavík – við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Laugavegar annars vegar og svo í Elliðaárdal – verið örvaðar. Hið sama hefur verið gert á lághitasvæðunum í Mosfellsbæ þar sem hátt í 40 holur hafa verið örvaðar. Í flestum tilvikum hefur örvunin haft mikil og góð áhrif og rennsli úr holunum hefur aukist allt að fertugfalt.“

Þá segir að örvunin geti valdið smáum jarðskjálftum en fáum sögum fer af því í sögu jarðhitanýtingarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu segir:

„Engu að síður þykir rétt að benda á þá hættu.  Meðan á örvun stendur er virkt eftirlit með viðbrögðum jarðskorpunnar og um 40 jarðskjálftamælar eru nú á svæðinu. Örvun fer þannig fram að vatni er dælt niður í holuna og viðbrögð eru könnuð jafnharðan. Ferlið er hægt í fyrstu og dælingin aukin í þrepum. Milli þrepanna er staðan tekin til að sjá hvernig jarðhitakerfið hefur brugðist við.

Í framhaldi af örvun þessarar eldri holu áforma Veitur að bora nýja heitavatnsholu í Geldinganesi.“