Samtök atvinnulífsins höfnuðu í morgun gagntilboði VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Grindavíkur og Verkalýðsfélags Akraness, sem var svar þeirra við tilboði SA frá fundi deiluaðila á miðvikudag. Deiluaðilar funduðu að nýju hjá ríkissáttasemjara í morgun. RÚV.is greinir frá.
„Það sem farið var yfir hér í dag, við teljum að það geti aldrei orðið grunnur að kjarasamningi. Kallað hefur verið eftir aðkomu stjórnvalda að þessari deilu. Sá grunnur og sú nálgun sem við höfum beitt, hjá Samtökum atvinnulífsins, er að skilgreina það svigrúm sem við teljum að sé til launahækkana sem við metum sem svo að sé forsenda þess að stjórnvöld komi að lausn þessara kjaraviðræðna.“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við RÚV.
Ljóst þykir að stjórnvöld þurfi að koma að kjaradeilunni með beinum hætti svo unnt sé að leysa hana.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir í samtali við RÚV: „Það sem er mikilvægast núna er að stjórnvöld einhendi sér í vinnuna um það hvað þau eru tilbúin til þess að gera til þess að það sé hægt að koma hér á kjarasamningi því að ef það mun ekki gerast þá er alveg ljóst að það mun draga til tíðinda í næstu viku og við munum slíta viðræðum ef ekkert kemur frá stjórnvöldum sem mun skipta máli.“ Hann segir að komi til þess að viðræðunum verði slitið væri næsta skref að hefja undirbúning að því að boða til verkfalls.
SA og fulltrúar verkalýðsfélaganna fjögurra funda næst hjá ríkissáttasemjara um miðja næstu viku.