Um 30% hækkun á gengi hlutabréfa í Kauphöllinni, sem varð á fyrstu mánuðum ársins, hélst meira og minna í allt sumar. Í byrjun maí var úrvalsvísitalan í um 2.500 stig en er núna í kringum 2.400 stig. Sumarið er almennt frekar rólegur tími í hlutabréfaviðskiptum og það hægist á öllu atvinnulífinu. Ein helstu viðskiptin á markaðnum voru þegar 20% hlutur í Arion banka var seldur á um 30 milljarða króna. Marel er sem fyrr langverðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinn, en það er einnig skráð í Hollandi. Markaðsvirði Marels er í kringum 450 milljarðar króna.
Hlutabréfamarkaðurinn: úrvalsvísitalan hélst í hæstu hæðum í sumar
Fleiri fréttir
Nýjast
Náttfari
Stórmenni kveður
Dagfari
Sigurvegarar kjarasamninganna
Dagfari