Hlógu að manni í lífshættu í reynisfjöru: sjáðu myndbandið

Ferðamaður lenti í lífshættu í Reynisfjöru þann 7. október. Á myndskeiði sem birt er á vef Daily Mail má sjá hóp ferðamanna í fjörunni. Einn ferðamannanna stendur á Stuðlabergi neðarlega í fjörunni þegar stór og mikil alda skellur á honum. Hefði maðurinn getað slasast alvarlega eða látist.

Á myndskeiðinu má heyra í öðrum ferðamönnum skella upp úr þegar þetta gerist. Horfa má á myndskeiðið hér fyrir neðan.