Í síðustu viku heimsótti Atvinnulífið Veitur ohf. og þá var m.a. fjallað um kalda vatnið og Gvendarbrunnar heimsóttir í því sambandi. Síðari hluti heimóknar til Veitna ohf. er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þá verður m.a. fjallað um hitaveituna, rafmagnsveituna, fráveituna og framkvæmdir á vegum Veitna ohf. Í þættinum kemur m.a. fram í viðtali við tæknistjóra hitaveitu að endingartími hitaveitulagna sem lagðar hafa verið á undanförnum árum er allt að 50 ár. Þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson mun þá ræða við tæknistjóra og sérfræðinga innan Veitna sem munu fræða áhorfendur um mál sem leika um okkur alla daga, allan ársins hring en fæstir spá í hvað liggur að baki þeirri þjónustu og þeim mannvirkjum sem færa okkur ylinn inn í stofurnar, ljósin í loftinu eða frárennslið frá heimilunum. Allt eru þetta fræðandi mál sem vert er að að gefa gaum en Atvinnulífið hefur þann megintilgang að fræða landsmenn um starfsemi ólíkra fyrirtækja á sem skýrastan hátt. Kvikmyndataka var í höndum Friðþjófs Helgasonar en drónatökur eru á vegum www.utsyn.is
Hitaveitulagnir sem endast í allt að 50 ár.
Fleiri fréttir
Nýjast
Náttfari
Stórmenni kveður
Dagfari
Sigurvegarar kjarasamninganna
Dagfari