Alls koma sex herskip til landsins vegna varnaræfingar NATO og þar af eitt flugmóðurskip. Skipin eru frá Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum og munu liggja við bryggju á Skarfabakka. Fyrstu skipin komu í gær og fleiri koma í dag samkvæmt vef Aflafrétta. En þar segir að mikið farið fyrir skipunum við bakanna.
Miklir farþegaflutningar verða dagana sem skipin eru á landinu. Aflafréttir segja að á milli 40 til 50 rútur muni aka á milli Skarfabakka og Hörpu frá morgni til kvölds alla daganna sem að skipin eru hérna.
Auk þess eru um 55 minni rútur, eða í kringum 19 sæta bíla sem munu aka yfirmönnum skipanna um Reykjavík og víðar. Þá mun á milli 400 til 500 hermenn fara upp í þjórsárdal í allt að 10 rútum.
SS Iwo Jima er langstærsta skipið sem kemur og mynd af því fylgir þessari frétt. Það er eina flugmóðurskipið sem kemur. Skipið er 257 metra langt og 32 metra breitt, var smíðað árið 2000 og mælist um 41 þúsund tonn. Um borð eru samtals vélar sem gefa um 70 þúsund hestöfl. Skipið gengur 22 mílur og hefur um 1800 manns í áhöfn.