Helga Dögg Sverrisdóttir sem starfar sem grunnskólakennari og er jafnframt fulltrúi grunnskólakennara í Vinnuumhverfisnefnd KÍ hefur skrifað hverja greinina á fætur annarri þar sem hún segir að mörg dæmi séu um að nemendur beiti kennara sína ofbeldi með hrikalegum afleiðingum. Jafnréttisnefnd KÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þessum málflutningi Helgu er mótmælt. Helga hefur einnig verið áberandi í umræðu um tálmunarmál gagnvart feðrum.
Jafnréttisnefnd beinir spjótum sínum að grein sem birtist þann 24. maí síðastliðinn. Fyrirsögnin er: „Nemendur hafa ásakað grunnskólakennara með slæmum afleiðingum.“ Þá hefst greinin á þessum orðum:
„Í samfélaginu hefur gengið yfir bylgja þar sem mönnum er frjálst að ásaka fólk um ýmsu hluti. Það er gert opinberlega án nokkurra afleiðinga. Stundum er fólk nafngreint og stundum ekki. Samfélagið hefur á vissan hátt samþykkt slíkt framferði. Börn læra það sem fyrir þeim er haft.“
Þá segir Helga jafnframt:
„Grunnskólakennarar hafa upplifað að nemandi sýni áverka, s.s. marbletti og klór, sem enginn veit hvernig er tilkominn nema nemandinn sjálfur, til að ná sér niðri á kennara. Það þarf ekki annað en að kennari setji nemanda mörk. Skólareglur henta ekki öllum og einstaka nemandi telur sig yfir skólareglur hafinn.
Grunnskólakennarar og stjórnendur eru berskjaldaðir þegar kemur að frásögnum barna sem vilja kennara eitthvað illt. Kennarar og stjórnendur hafa varann á ef þeir þurfa að ræða einslega við nemanda, þeir hafa opna hurð eða annan aðila með sér, óttinn um hvað nemandi gæti tekið upp á er alltaf á bak við eyrað. Langt í frá eðileg þróun.“
Jafnréttisnefnd KÍ mótmælir eins og áður segir málflutningi Helgu. „Nefndin telur málflutning kennarans vera þess valdandi að grafa undan trausti nemenda og forráðafólks til kennara og skólakerfisins,“ segir orðrétt í ályktun nefndarinnar.
Ályktun jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands hljóðar svo:
Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands mótmælir málflutningi Helgu Daggar Sverrisdóttur grunnskólakennara í Kjarnanum 31. maí síðastliðinn um falskar ásakanir nemenda um meint ofbeldi kennara. Nefndin telur málflutning kennarans vera þess valdandi að grafa undan trausti nemenda og forráðafólks til kennara og skólakerfisins. Umræddur málflutningur er illa rökstuddur og gengur í bága við skyldur skólakerfisins við barnavernd og þá frumskyldu kennara að valdefla nemendur, virða þá og vernda. Nauðsynlegt er að samfélagið í heild hjálpist að við að bjóða ungu fólki upp á góð uppeldisskilyrði þar sem hlúð er að siðferðisvitund og virðingu. Ef upp koma alvarleg mál er mikilvægt að verkferlar séu skýrir og allir, starfsfólk skóla, forráðafólk og nemendur þekki hvernig beri að bregðast við.
F.h. jafnréttisnefndar,
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir forkona