Heimir Björn Ingimarsson, fæddist 19. janúar 1937. Hann lést 7. júní 2019 í sumarbústað sínum. Eiginkona Heimis til 61 árs var Stefanía Rósa Sigurjónsdóttir, f. 28. janúar 1940, d. 15. febrúar 2019.
Heimir og Rósa bjuggu lengst af á Akureyri eða í 43 ár. Heimir var menntaður húsasmiður. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri og til 12 ára var hann bæjarfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið á Akureyri. Greint er frá andláti Heimis í Morgunblaðinu. Reynir Ingibjarnarson segir í minningargrein um Heimi:
„Það verður ekki sagt að vindarnir hafi blásið með þeim sem stóðu að stofnun húsnæðissamvinnufélaga hér á landi undir lok síðustu aldar. Árum saman var barist fyrir löggjöf um þetta húsnæðisform og þær voru margar ferðirnar í Alþingishúsið.
Að lokum tókst þó að tryggja þessum húsnæðiskosti tilverurétt í húsnæðiskerfinu. Einn af þeim sem stóðu vaktina var Heimir Ingimarsson. Eitt af fyrstu húsnæðissamvinnufélögunum sem stofnuð voru undir merkjum Búseta var félagið á Akureyri. Þar gerðist Heimir fljótlega forystumaður. Hann tók líka sæti í stjórn Búseta landssambands og jafnan kallaður ritarinn. Áður en fundi lauk var Heimir oftast búinn að klára fundargerðina og þar þurfti ekki að hnika til staf. Svo var Heimir listaskrifari.
Heimir stýrði skrifstofu Búseta á Akureyri í fjölda ára og hann kom einnig við sögu Húsnæðissamvinnufélagsins Búmanna á fyrstu árum félagsins á Akureyri.
Heimir var félagsmálamaður í bestu merkingu þess orðs og hjartað sló með þeim sem áttu undir högg að sækja í þjóðfélaginu.“