Heim til Spánar verða endursýndir á Hringbraut í kvöld. Í þessari tveggja þátta seríu heimsækir Sigmundur Ernir Íslendingasamfélagið á Spáni, en Íslendingar kaupa í æ ríkari mæli fasteignir á Spáni þar sem íbúðaverð er í sumum tilvikum aðeins þriðjungur af því sem þekkist hér á landi. Veðrið og verðlag á nauðsynjavöru letur fólk heldur ekki til þess að eignast sitt annað heimili á sólarströndu.
Við kynnumst Íslendingum sem hafa sest að á Spáni og á meðal þeirra sem rætt er við er Steina Jónsdóttir, sölustjóri spænska fasteignafélagsins Medland, sem hefur þjónustað fjölda Íslendinga í þessum efnum á undanförnum árum. Þættirnir eru unnir í samvinnu við Medland og vakin er athygli á kynningu félagsins á CenterHotel Plaza um helgina. Hægt er að skrá sig á kynningu á laugardag 16. febrúar eða sunnudag 17. febrúar hér.
Sérstaka athygli vekur í þáttunum hvað nýjar fasteignir á Spáni, ætlaðar íbúum Norður-Evrópu til lengri eða skemmri dvalar eru orðnar bjartar og rúmgóðar - og ekki skemmir verðið sem er mesta lagi helftin af því sem þekkist á Íslandi. Einnig er þjónustan í grennd við fasteignirnar mikil og alhliða, ekki síst hvað tómstundir varðar, en einnig á sviði öryggis- og heilbrigðismála.
Við þetta bætist svo verðlagið ytra sem er broslegt í huga landans, eins og þættirnir bera með sér, en í þeim er einmitt líka fjallað um menningu og matarvenjur Spánverja og alla þá afþreyingarkosti sem þar eru í boði allan ársins hring, undir öruggri sól.
Fyrir vikið blómstrar Íslendinganýlendan á Spáni - og til marks um fjöldann má nefna að aðeins á Costa Blanca svæðinu suður af Alicante hafa að minnsta kosti þúsund eignir komist í eigu Íslendinga á undanförnum áratugum.
Í þáttunum eru margvíslegar nýjar húseignir skoðaðar, allt frá 270 fermetra villu með öllu sem kostar á bilinu 50 til 55 milljónir króna, en einnig smærri einbýlishús, 150 fermetrar á um 30 milljónir króna, svo og glæsilegar íbúðir í fjölbýli, ýmist tveggja eða þriggja herbergja með tveimur til þremur salernum og tvennum svölum á um 24 til 28 milljónir króna, en þar er innifalin stór sameiginleg sundlaug, spa og sauna og líkamsræktarstöð.
Lánafyrirkomulag á Spáni er einfalt og skilvirkt, vextir til húsnæðiskaupa 2 til 3 prósent, án verðtryggingar, sem þekkist ekki í landinu, en aldurstakmark á þessum lánum er 75 ár.
Þættirnir voru teknir upp á síðasta ári og frumsýndir um haustið.
Fyrri þátturinn af Heim til Spánar hefst klukkan 20:00 og seinni þátturinn hefst klukkan 20:30 á Hringbraut í kvöld.