Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Sýnar, hefur keypt 1,5 milljón hluti í Sýn fyrir 91,5 milljón króna.
Viðskiptablaðið segir frá hér
Í fréttinni segir einnig að á föstudag hafi Hjörleifur Pálsson, stjórnarmaður keypt bréf fyrir rúmar 6 milljónir og á fimmtudag hafi Stefán Sigurðsson, forstjóri keypt fyrir 2 og hálfa milljón.
Ennfremur segir frá árshlutauppgjöri Sýnar í liðinni viku. Þar hafi meðal annars komið fram að félagið tapaði 4 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi. Helsta ástæðan var sögð kostnaður við samruna við 365, sem hafi verið vanmetinn.