Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, kveðst litla trú hafa á enn einum starfshópnum sem skipaður hefur verið til að koma með lausnir í þeirri von að ná böndum á húsnæðisvandann. Fréttablaðið greindi frá því í dag að þau Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Íbúðalánasjóðs, og Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, skipuðu hópinn sem forsætisráðherra kom á fót.
Þorsteinn fagnar því að ríkisstjórnin hafi, ári eftir að hún tók við völdum, áttað sig á húsnæðisvandanum. „Það er hins vegar dálítið kómískt að sjá að meðulin sem gripið er til eru hefðbundin meðul þessarar ríkisstjórnar. Það er rokið til og skipaður starfshópur og sá starfshópur þarf að sjálfsögðu að hafa samráð við aðra starfshópa sem eru starfandi í húsnæðismálum þá stundina og ætlað að skila tillögum hið snarasta,“ sagði Þorsteinn í umræðum um störf þingsins fyrr í dag.
Telur hann líklegt að störf hópsins verð í takt við þeirra sem ríkisstjórnin stundar. „Það nefnilega virðist afskaplega lítið komast til framkvæmda hjá þessari blessuðu ríkisstjórn. Henni tekst ekki að leggja mál sín fram samkvæmt áætlun, ekki nema að hálfu leyti í besta falli, og ég óttast að það verði örlög starfshópsins eða tillagna hans að fáar þeirra komist nokkurn tímann til framkvæmda.“
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/hefur-litla-tru-a-starfshopi-leiktjaldarikisstjornarinnar