Haraldur Sveinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, er fallinn frá. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi síðastliðinn laugardag, 21. september, þá 94 ára að aldri. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Haraldur var framkvæmdastjóri Morgunblaðsins á árunum 1968-1995. Hann átti jafnframt sæti í stjórn Árvakurs um árabil. Þá var hann formaður nefndarinnar 1954-1969 og árin1995-2005.
Haraldur sat lengi í stjórn hestamannafélagsins Fáks og Landssambands hestamannafélaga 1961-79 og var gerður að heiðursfélaga Landssambands hestamannafélaga árið 2011. Hafði hann áður hlotið gullmerki þess. Á vef mbl.is segir að utan starfsins hafi hestamennskan átt hug Haraldar, sem ungur eignaðist jörðina Álftanes á Mýrum, þar sem hann var með hross og stundaði búskap.
Eftirlifandi eiginkona Haraldar er Agnes Jóhannsdóttir, f. 1927, húsfreyja og eignuðust þau fjögur börn.