Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona leggur um þessar mundir lokahönd á sína aðra ljóðabók, Ljós og hljóðmerki sem væntanleg er í verslanir í haust. Margir kannast líklega við Höllu í hlutverki trúðsins Za-Ra úr verkinu Dauðasyndirnar sem sett var á svið árið 2008 við góðar viðtökur.
Í viðtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás eitt deilir Halla lífsraunum sínum en hún hefur bæði lifað af krabbamein og alvarlegt bílslys.
Greindist með krabbamein og gaf út ljóðabók
Halla segir krabbameinið hafa verið greint tveimur vikum fyrir útgáfupartý fyrstu ljóðabókar sinnar og að fréttirnar hafi verið sláandi.
„Ég fór í krabbameinsleit og það kemur í ljós einhver kölkun. Ég fór í einhvern skurð til að fjarlægja það sem talið var góðkynja æxli en fékk svo að vita að þetta væri krabbamein,“ segir Halla í viðtalinu.
Krabbamein Höllu var lítið en hafði þegar byrjað að dreifa sér. Var hún send í uppskurð þar sem meinið var fjarlægt og í kjölfar þess í ferli þar sem framundan tók við geisla- og andhormómameðferð.
„Ég lagðist undir feld, fór í göngutúra og aflaði mér upplýsinga. Á endanum tók ég ákvörðun að vera þakklát fyrir alla möglueika sem mér stóðu til boða. En ég sagði samt nei takk. Ég fann að þeg þyrfti að vera í tengslun við sjálfa mig og þá þekkingu sem ég hafði aflað mér í algjörri auðmýkt gagnvart lífinu og dauðanum sem við öll einhverntíma mætum.“
Braut sjö fingur í einu falli
Halla sem er þriggja barna móðir fór á fótboltamót í Vestmannaeyjum þegar hún var nýgreind með krabbameinið. Þar lenti hún í óhappi og tókst að brjóta á sér fingurna.
„Ég hafði aldrei sprangað svo við maðurinn minn ákváðum að slá til. Ég fæ svona rugl í hausinn og hugsa, jú þú lifir nú bara einu sinni, en þegar ég er komin upp á sylluna hrópar maðurinn minn: Horfðu bara á Heimaey og ýttu þér svo frá! Ég slengdist úr spröngunni og lenti á fingrunum. Á annarri hendi braut ég þrjá fingur og á hinum fjóra.“
Hélt hún væri í bíómynd
Óhöpp Höllu eru fleiri en eitt sinn lenti hún í alvarlegum árekstri þegar hún var að hjóla. Vöruflutningabíll með 37 tonn af frostum makríl innanborðs keyrði á hana á fullri ferð og þakkar leikkonan hjálminum sem talin er hafa bjargað lífi hennar. Halla mundi ekki eftir skellinum né hjólaferð sinni og þegar hún rankaði við sér stóð yfir henni amerískur bráðaliði. Þá hélt hún að hún hlyti að vera að leika í bíómynd.
„Ég sé sjálfa mig speglast í sólgleraunum og hugsaði: Hvað á ég aftur að segja næst?“
Við áreksturinn fékk Halla innvortis blæðingu og áverka hér og þar á líkamann. Hjálmur hennar splúndraðist og því óhætt að segja að hann hafi bjargað lífi hennar.
Þurfa allir að leyfa sér að dreyma stóra drauma
Um þessar mundir er Halla Margrét að leggja lokahönd á undirbúning ritlistarnámskeiðs sem hún stendur fyrir ásamt Soffíu Bjarnadóttur skáldi og vinkonu sinni.
Hún segist aldrei hafa hitt manneskju með of stóra drauma sem hún hafi þurft að ráðleggja að finna sér aðra fjöl í lífinu. „Við þurfum öll að leyfa okkur að dreyma stóra drauma, þá vitum við hvert við viljum fara. Þannig eigum við drauminn og getum spurt okkur daglega hvað get ég gert í dag til að nálgast drauminn?“