Reykjavíkurborg er farin að hafna umsóknum um ný hótel og nýjar hótelíbúðir í miðborginni. Einnig hafa gistileyfi ekki verið endurnýjuð, samkvæmt frétt á mbl.is í dag.
Þar er haft eftir Hjalta Gylfasyni, framkvæmdastjóra Mannverks, að þessi stefnubreyting hafi þau áhrif að félagið hefur endurhugsað tvö fyrirliggjandi hótelverkefni. Áformað er að taka minnst 730 hótelherbergi í notkun í borginni á næsta ári og við það bætast 54 hótelíbúðir.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa bankarnir skrúfað fyrir útlán til hótelbygginga. Þá á óvissa um stöðu flugfélaganna þátt í að dregið hefur verið úr útlánum til ferðaþjónustuverkefna almennt.