Veiking íslensku krónunnar undanfarið skýrist meðal annars af því að Íslendingar hafa fært krónueignir sínar í gjaldeyri að sögn aðalhagfræðings Landsbankans.
Rætt er við Daníel Svavarsson forstöðumann hagfræðideildar Landsbankans á vísir.is. Hann segir þó enga einhlíta skýringu á veikingu krónunnar.
Íslenska krónan er búin að veikjast um tæplega tíu prósent á síðustu þremur mánuðum og sjö og hálft prósent á undanförnum mánuði. Í frétt vísi segir að ástæðan sé ekki sú að útlendingar hafi misst trú á Íslandi heldur eru það gjörðir Íslendingra sjálfra sem orsaka veikinguna að hluta til, þeirra sem flytja hluta af sparnaðinum sínum í erlenda mynt.
Daníel segir að ekkert í hagtölum skýri veikinguna á þessum tímapunkti, segir í fréttinni og haft eftir honum: „Útflutningur er ennþá að vaxa og við erum frekar að sjá það hægi á innflutningi ef eitthvað er. Skýringin virðist frekar liggja í einhverri neikvæðni á markaðnum.“
Þá viðhaldi Seðlabankinn ennþá höftum á innflæði gjaldeyris en áhuga erlendra aðila sé enn mikill til staðar á að koma inn á skuldabréfamarkaðinn. Væru höftin ekki til staðar eða minni hefði veiking krónunnar verið minni.
Daníel nefnir að neikvæð umræða hafi verið um gjaldmiðilinn í kringum erfðleika flugfélaganna en nú þegar það er afstaðið þá geta kröfur verkalýðshreyfinganna verið til þess að trú manna á miðilinn aukist ekki á ný.
Fréttina á visir.is má lesa hér