Hæfnisnefnd um ráðningu í seðlabanka

Forsætisráðherra hefur skipað þriggja manna hæfnisnefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti aðstoðarseðlabankastjóra.

 Skipun nefndarinnar í samræmi við ákvæði laga um Seðlabanka Íslands og  hana skipa Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, Þórunn Guðmundsdóttir, hæstaréttarlögmaður, tilnefnd af bankaráði Seðlabanka Íslands, og Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. 

Embætti aðstoðarseðlabankastjóra var auglýst laust til umsóknar þann 21. febrúar sl. og sóttu 14 um embættið.

Ráðgert er að endanleg niðurstaða nefndarinna liggi fyrir ekki síðar 30. maí næstkomandi, segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins.