Hæ, hó jibbí jei – hvað ætlar þú að gera á 17. júní?

Framundan er þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga, 17.júní og í tilefni þess fengum við Albert Eiríksson matarbloggara og fagurkera með meiru til að segja okkur frá sínum hefðum og siðum í tengslum við 17. júní.  Einnig fengum við Albert til að gefa okkur nokkrar hugmyndir um hvað er hægt að gera til að gleðjast saman og fagna þjóðhátíðardeginum.

Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní. Margir tengja þjóðhátíðardaginn, 17. júní við ákveðnar minningar. Annað hvort minningu um það sem var gert, borðað, kaffimeðlæti, veður eða annað. Í mínu ungdæmi var gjarnan farið í í fjallgöngu á þessum merka degi. Þjóðhátíðardagurinn er frídagur og tilvalið að gera sér dagamun og halda upp á daginn. Það er ágætt að hafa í huga að við búum til minningar fyrir næstu kynslóðir. Hér eru nokkrar hugmyndir hvað hægt er að gera á mánudaginn:

Nestisferð í guðs grænni náttúrunni. Finna fallegan stað og halda þangað með góðu fólki. Taka til nesti og köflóttan dúk, finna græna laut á skjólsælum stað og drekka þar. Ef margir ætla að hittast er upplagt að allir komi með veitingar með sér - allir-bjóða-öllum fyrirkomulagið eykur fjölbreytnina. Svo er alltaf gaman að fara í leiki. Í öllum fjölskyldum er einhver sem er „leikjaóður” og er til í að skipuleggja leiki. Það getur verið afar eftirminnilegt fyrir yngri kynslóðina að sjá fullorðið fólk haga sér eins og börn og taka þátt í „alls konar vitleysu”.

\"\"

Kaffiboð með þjóðlegum veitingum. Það er fátt skemmtilegra en hitta fjölskyldu og vini yfir kaffibolla og góðum veitingum. Rabarbarinn er sprottinn í görðum og fínt að nýta hann með því að baka með kaffinu. Ef þið eigið ekki rabarbara biðjið þá vini ykkar að gefa ykkur, flestir eru fegnir ef einhver getur nýtt uppskeruna. Auk baksturs úr rabarbara er upplagt að bjóða upp á fleira þjóðlegt með kaffinu eins og lummur, perutertu, kleinur, hjónabandssælu eða pönnukökur.  

Fara í bæinn með fána. Víða um land er dagskrá í tilefni þjóðhátíðardagsins, fjallkonan les ljóð (eftir löngu dauðan kall eins og segir í Hæ, hó jibbí jei… ljóðinu) og fleira er í boði. Það er gaman að rölta um og hitta fólk, láta kylfu ráða kasti, fara á kaffihús eða annað. Margir eiga þjóðbúninga og klæðast þeim í tilefni dagsins. Við förum gjarnan í okkar þjóðbúningum í bæinn. Ekki má nú gleyma að taka með sér íslenska fánann og blöðrur. Þarf alltaf að muna að klæða sig eftir veðri, við búum jú á Íslandi.

\"\"

Ísbíltúr. Ís á alltaf vel við og ekki síst 17. júní. Það getur verið fínasta hugmynd að keyra út í bláinn og fá sér ís. Á leiðinni er hægt að rifja upp baráttu genginna kynslóða fyrir því að verða sjálfstæð þjóð, tala um Jón Sigurðsson og síðasta danska kónginn sem ríkti á Íslandi. Fleira má prjóna inn í eins og þjóðsögur, ævintýri, málshætti, íslenskuna, náttúruna. Ef ekki er búið að skipuleggja sumarið er ágætt að draga það ekki lengur. Til dæmis geta allir komið með nokkrar óskir hvað væri gaman að gera og svo eru þær ræddar. 

Gera eitthvað saman. Oft er samveran skemmtilegust og í könnunum meðal ungs fólks kemur aftur og aftur fram að það óski eftir meiri samveru með foreldrum og fjölskyldu. Öllum finnst gaman að brjóta upp hversdaginn, líta upp úr tölvunni eða símanum og eiga skemmtilega stund saman. Um að gera að hafa gaman og finna eitthvað skemmtilegt. Hjólreiðatúr, göngutúr, fjallgöngu, safnaferð, fjöruferð, sundferð eða skógarferð. Leyfið hugmyndaflugi heimilisfólks að blómstra og út frá því koma fjölmargar skemmtilegar hugmyndir.

\"\"

Albert gefur hér upp margar skemmtilegar hugmyndir að því hvað við getum gert til að halda þjóðhátíðardaginn hátíðlegan, hver og einn á sinn hátt. Vert er að minna á bloggið hans Alberts sem ávallt er skemmtilegt að fylgjast enda er hann afar iðinn við koma með ýmis konar fróðleik, skemmtun, ljúffengar uppskriftir og ekki síst upprifjun um góða siði og venjur sem gott er að temja sér. Þið getið fylgst með blogginu hans Alberts á heimasíðunni: www.alberteldar.com

Gleðilega þjóðhátíð.