Gylfi formaður bankaráðs sí

Bankaráð Seðlabanka Íslands hefur kosið Gylfa Magnússon formann bankaráðs Seðlabanka Íslands. Jafnframt hefur ráðið kosið Þórunni Guðmundsdóttur varaformann ráðsins. Í ráðinu eiga einnig sæti eftirfarandi aðalfulltrúar: Sigurður Kári Kristjánsson, Frosti Sigurjónsson, Bolli Héðinsson, Una María Óskarsdóttir og Jacqueline Clare Mallett.
 

Varafulltrúar í ráðinu eru Þórlindur Kjartansson, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Hildur Traustadóttir, Vilborg Hansen, Kristín Thoroddsen, Ólafur Margeirsson og Bára Valdís Ármannsdóttir.

Gylfi var í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur viðskiptaráðherra 1. febrúar 2009 til 10. maí 2009 og efnahags- og viðskiptaráðherra til 2. september 2010.