Gunnar Kristinn Þórðarson sem titlaður er formaður Samtaka umgengisforeldra hefur ákveðið að draga sig alfarið til hliðar og láta af störfum fyrir hinar ýmsu feðrahreyfingar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gunnar Kristinn lýsir því yfir að hann ætli að draga sig í hlé. Þann 17. september árið 2018 sagði Gunnar Kristinn að hann hefði ákveðið að hætta þátttöku í stjórnmálum og ætlaði að leggja niður Samtök umgengisforeldra og elta ástina til útlanda. Í samtali við DV sagði Gunnar Kristinn að ástarsambandið væri á viðkvæmu stigi. Ekki fer frekari sögum af því ástarsambandi en mánuði síðar var Gunnar Kristinn mættur í Harmageddon og var þar kynntur til leiks sem formaður Samtakanna. Í grein eftir Gunnar Kristinn í Morgunblaðinu er hann titlaður fráfarandi formaður. Þá er Gunnar Kristinn fyrrverandi oddviti hins umdeilda Karlalista. Einnig hefur verið fjallað ítarlega um Gunnar Kristinn, Samtök umgengisforeldra og Karlalistann á femínska vefritinu Knúz.is en þar var rekstur Gunnars harðlega gagnrýndur.
Gunnar Kristinn, sem hefur eldað grátt silfur við íslenska femínista síðustu ár, skrifar grein í Morgunblaðið og heldur fram að kynin geti verið jafn ofbeldisfull. Þá segir Gunnar að ofbeldi í samböndum byrji oft með reiðiköstum konunnar sem þróist út í löðrunga. Þá séu feðurnir næst lamdir með hlutum eða hlutum kastað í þá. Þá sé þeim hótað skilnaði eða sambandsslitum og hótað fölskum ásökunum og farið með ásakanir og lygasögur í fjölmiðla í refsingarskyni. Ofan á þetta heldur Gunnar Kristinn því fram að þeim sé hótað umgengnistálmunum ef þeir fari lengra með málið eða sæki um skilnað. Gunnar segir að ýmislegt fleira hendi þessa menn og líf þeirra sé vakandi martröð og sumir í bráðri sjálfsvígshættu.
„Er þetta fullyrt hér,því sjálfur hef ég séð sannanir fyrir slíku ofbeldi af hendi kvenna í þeim málum sem ratað hafa til samtakanna.“
Gunnar Kristinn segir einnig að hann hafi orðið fyrir persónuníði og birtar hafi verið upplýsingar úr sjúkraskrá han í þeim tilgangi að reyna eyðileggja trúverðugleika hans. Gunnar Kristinn segir að þá hafi verið birtar „ógeðfelldar lygar um persónu hans á Moggablogginu.“
„Hvernig verst maður slíku ofbeldi? Það er í reynd ekki hægt nema slíta sig frá og að skilja sig gerandanum. Í samráði við barnsmóður mína og fjölskyldu hef ég tekið þá ákvörðun að draga mig frá þessari mikilvægu baráttu og láta af störfum fyrir hinar svokölluðu feðrahreyfingar. Það er mín leið til að verjast ofbeldinu.“