Grunur leikur á um að fjöldi rúmenskra verkamanna séu í nauðungarvinnu hjá starfsmannaleigu á höfuðborgarsvæðinu. ASÍ, Efling og Vinnumálastofnun rannsaka málið og lögreglu hefur verið gert viðvart. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær og Vísir.is greinir frá.
Rúmensku verkamennirnir starfa eða störfuðu í byggingariðnaði fyrir starfsmannaleiguna Menn í vinnu ehf. Þeir dvelja í mjög þröngu, ólöglegu íbúðarhúsnæði í Kópavogi ásamt fjölda annarra Rúmena.
Þeir verkamenn sem fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við segjast vera peningalausir, svangir og hræddir. „Það eru alltaf vandræði með peninga. Við fáum aldrei borgað. Við fáum ekki borgaða yfirvinnu. Ég kom hingað til að hjálpa fjölskyldunni minni en ég fæ ekkert borgað,“ segir Romeo Sarga, sem hefur unnið fyrir starfsmannaleiguna í sex mánuði.
Hann segir á bilinu 40-50 aðra Rúmena vera í sömu sporum og að þeir séu allir að gefast upp.
Nauðungarvinna og þrælahald
„Að mínu mati er þetta nauðungarvinna og þrælahald. Þetta er mjög slæm aðstaða og ég er búin að sjá bankareikniga hjá þeim þar sem að fyrirtækið leggur inn og tekur jafn harðan út aftur. Mennirnir komast ekki neitt og þeir eru ekki á launum,“ segir María Lóa Friðjónsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ.
„Við höfum enga ástæðu til að rengja upplýsingar mannanna. Mér sýnist vera um að ræða umfangsmikla brotastarfsemi af hálfu þessa fyrirtækis, mögulega skjalafals og eitthvað ennþá verra, og gagnvart þessum starfsmönnum er þetta nauðungarvinna og mögulega þrælahald,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, tekur í sama streng í pistli er nefnist „Á Íslandi þrífst þrælahald.“ Þar harmar hún ömurleg kjör og aðbúnað verkamannanna og hvetur til aðgerða: „Fjármögnum aðgerðaráætlun gegn mansali, komum á keðjuábyrgð, stöðvum kennitöluflakk, styrkjum útboðsskilyrði og þéttum og samræmum eftirlit og aðgerðir gegn brotafyrirtækjum! Ef við grípum ekki til aðgerða getum við allt eins gefið út yfirlýsingu um að okkur sé sama um að hér þrífist þrælahald. Allt þetta og meira til er að finna í tillögum í tengslum við kjarasamninga gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði. En það á ekki að þurfa þrýsting sem lausir kjarasamningar bjóða uppá til að taka á grundvallar mannréttindum. Það er mælikvarði á siðmenntað samfélag hvernig við komum fram við þau sem eru í viðkvæmustu stöðunni.”
Forsvarsmaður starfsmannaleigunnar Menn í vinnu ehf. vildi ekki veita fréttastofu Stöðvar 2 viðtal vegna málsins en vísaði öllum ásökunum á bug.